Íslandsmótið í Póker á netinu 2008

Íslandsmótið í Póker á netinu 11. maí 2008

 

 

52 spilarar tóku þátt og var heildarverðlaunafé €19074. Veit voru verðlaun fyrir þá 9 sem komust á lokaborðið en staðan þegar 9 voru eftir var:

1. jbellamy - 110 397 chips
2. TheGlove - 96 191 chips
3. boobiedipp - 90 446 chips
4. Refurinn - 81 543 chips
5. IAmMine - 72 618 chips
6. luckpot - 55 404 chips
7. miss147 - 54 006 chips
8. CASINOICE_ - 39 738 chips
9. jorgi59 - 8 657 chips

Það leið töluverður tími þangað til að fæakkaði  um einn spilara. jorgi59 var búinn að folda sig niður í 2 314 chips og þá gerðist þetta í blindunum 2 500 / 5 000

jorgi59 fór all-in (2 314) og IAmMine fór all-in (48 074). Enginn hafði neitt við þetta að bæta og jorgi59 sýndi 4-4 en IAmMine var með A-9. Það kom A á turn og jorgi59 endaði í 9. sæti og fékk €711 í verðlaun.

Staðan í mótinu var núna:

1. CASINOICE_ - 155 324 chips
2. luckpot - 85 808 chips
3. jbellamy - 80 396 chips
4. boobidipp - 76 248 chips
5. Refurinn - 59 043 chips
6. miss147 - 58 506 chips
7. IAmMine - 57 888 chips
8. TheGlove - 35 787 chips

Það dró lítið til tíðinda og við fengum lítið að sjá flop þangað til að blindar voru 3 500 / 7 000. IAmMine fór all-in (47 388) og Refurinn sá það. IAmMine var vongóður þegar hann sýndi G-G og sá að Refurinn var með 10-10. Floppið var 2-10-3 og þegar að enginn G kom þá varð IAmMine að sætta sig við 8. sæti sem gaf €792.

Næst dró til tíðinda þegar TheGlove fór all-in (42 787) og miss147 fór all-in líka (41 006). TheGlove sýndi 4-4 en miss147 var með A-K.

Floppið var 6-7-D og svo kom 5 og 10 og miss147 fór út nr. 7 sem gaf €891 í verðlaun.

Staðan núna þegar 6 voru eftir:

1. Refurinn - 156 931 chips
2. CASINOICE_ - 155 324 chips
3. TheGlove - 90 793 chips
4. jbellamy - 88 896 chips
5. luckpot - 66 808 chips
6. bobbiedipp - 50 248 chips

 

bobbiedipp hafði verið frekar rólegur á Lokaborðinu og það kom að því að hann fór all-in þegar hann var fyrstur að gera og TheGlove var fljótur að fara all-in líka. boobiedipp sýndi A-8 en TheGlove var með A-K.

boobiedipp fékk enga hjálp í borðinu og potturinn rann til TheGlove. boobiedipp fékk €1017 fyrir 6. sætið.

 Skömmu síðar reisti CASINOICE_ í 18 000 og luckpot fór all-in (56 308). Núna var tæplega 85 000 í pottinum og það kostaði CASINOICE_ 38 000 að kalla og gerði hann það. Hann sýndi A-10 en luckpot var með K-G.

Það kom A á floppi og luckpot datt út 5. Hann fékk €1186 í vasann fyrir 5. sætið.

Staðan með 4 eftir var:

1. Refurinn - 206 931 chips
2. CASINOICE_ - 193 132 chips
3. TheGlove - 111 041 chips
4. jbellamy - 97 896 chips

Mjög fljótlega lenti jbellamy og CASINOICE_ saman. jbellamy reisti í 28 000 og CASINOICE_ reisti það í 70 000.
jbellamy fór all-in og það kostaði CASINOICE_ aðeins 20 000 að kalla það sem og hann gerði.

jbellamy var með AD en CASINOICE_ sýndi KG.

Hvorugur bætti sig neitt í borði og jbellamy doblaði sig upp.

Nokkrum höndum síðar þegar blindar voru komnir í 5 000 / 10 000 þá reisti CASINOICE_ í 25 000 og TheGlove fór all-in (87 541). Núna lagði CASINOICE_ sig og potturinn fór til TheGlove.

2 höndum síðar fóru jbellamy og CASINOICE_ saman í litla og stóra blind. jbellamy sýndi 2-2 og CASINOICE_ var með
A-10. Borðið endaði K-G-7-6-4 og CASINOICE_ datt út í 4. sæti og vann sér inn €1425.

Núna voru jbellamy og Refurinn með rúmlega 200 þúsund chips og TheGlove var síðastur með rúmlega 100 þúsund.

Það var harst barist um blindana og loksins dró til tíðinda þegar TheGlove fór all-in (112 541) og jbellamy kallaði.
TheGlove sýndi D-5 og jbellamy var með A-10.

Hvorugur bætti sig á floppinu og TheGlove datt út 3. og fékk €2373 í sinn hlut.

jbellamy og Refurinn skiptust á að dobla hvorn annann upp og er of langt mál að skrifa um alla potta sem þeir spiluðu þegar þeir voru 2 eftir. Vendipunkturinn var eftirfarandi hönd í blindunum 8 000 / 15 000:

jbellamy átti 328 238 chips og Refurinn var með 280 762. Refurinn reisti um 29 000 (37 000 alls) og jbellamy kallaði.

Floppið var 8-7-6 og allt í spaða. Núna bauð jbellamy 38 000 og Refurinn reisti í 76 0000 og þá fór jbellamy all-in sem Refurinn kallaði.

jbellamy sýndi spaða Ás og tígul 7 á meðan Refurinn átti K-5 og bæði í spaða.

Þegar spaða 4 kom á turn þá var jbellamy með spaðalit og Á hæstan en Refurinn var með litaröð og vann pottinn!

jbellamy var samt fljótur að ná sér upp og var kominn í 160 000 þegar þeir fóru all-in eftir floppið D-8-2 og þar af 2 lauf. jbellamy sýndi D-8 og Refurinn var með 8-7 og þarf af eitt lauf.

Þegar lauf kóngur kom á turn og lauf 5 á river þá var jbellamy með 2 pör en Refurinn með lit!

jbellamy fékk €3559 fyrir 2. sætið og Refurinn fékk €7120 og forláta bikar fyrir sigurinn!

Til hamingju Refurinn!

 

 

Top 10 Winners Last 24h

1. und_roka€18,601
2. GoDiscoGo€17,957
3. Bruce_L33t€16,733
4. Cristal*€15,424
5. AFStar€14,644
6. RollsRoyce€13,284
7. memeo€12,798
8. Louis Dega€9,482
9. KONCERNEN€6,543
10. -CreamPie-€6,537
 
Choose your language:English 


4KingsVisa 4KingsMastercard neteller 4KingsWebmoney 4kingsMoneybookers 4KingsThawte 4KingsOver18

© 2006 4kings.com. All rights reserved.
Email: info@4kings.com
Terms & Conditions